122. fundur
miðvikudaginn 10. júní 2026
kl. 7.30 síðdegis.
varamenn taka þingsæti
Forseti tilkynnti að Auður Finnbogadóttir tæki sæti Jóns Gnarrs, 7. þm. Reykv. s.
drengskaparheit.
Auður Finnbogadóttir, 7. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Fundarhlé — 19:31]
almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar skiptust í tvær umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.
Röð flokkanna var þessi í báðum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Viðreisn, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins.
Ræðumenn flokkanna voru eftirtaldir:
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn töluðu Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurkjördæmis, í fyrri umferð og Bryndís Haraldsdóttir, 1. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.
Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrri umferð Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, og í þeirri seinni Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 9. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Miðflokkinn töluðu Snorri Másson, 6. þm. Reykjavíkjurkjördæmis suður, í fyrri umferð og í þeirri seinni Karl Gauti Hjaltason, 4. þm. Suðurkjördæmis.
Ræðumenn Viðreisnar voru Pawel Bartoszek, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrri umferð og í þeirri seinni María Rut Kristinsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis.
Fyrir Framsóknarflokkinn töluðu Stefán Vagn Stefánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og Ingibjörg Isaksen, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í þeirri seinni.
Ræðumenn Flokks fólksins voru Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 1. þm. Suðurkjördæmis, í fyrri umferð og Sigurður Helgi Pálmason, 7. þm. Suðurkjördæmis, í seinni umferð.
Þingmaður utan flokka var Guðmundur Ingi Kristinsson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, sem talaði í fyrri umferð.
[21:09]
Útbýting þingskjala