69. fundur

þriðjudaginn 10. febrúar 2026

kl. 1.30 miðdegis.

varamenn taka þingsæti

Forseti tilkynnti að Árni Helgason tæki sæti Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, 1. þm. Suðvest.


mannabreytingar í nefndum.

Forseti tilkynnti að Guðmundur Ingi Kristinsson tæki sæti varamanns í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Ragnars Þórs Ingólfssonar.


Frestun á skriflegum svörum.

grunnskólar, 388. mál. — Þskj. 651.

Umræðu lokið.


[13:31]
Útbýting þingskjala

dagskrártillaga.

Greidd voru atkvæði um dagskrártillögu Sigríðar Á. Andersen og fleiri.


um fundarstjórn.

um atkvæðagreiðslu.

Málshefjandi var Þorgrímur Sigmundsson.


störf þingsins.

Umræðu lokið.


Kosning eins aðalmanns í stað Ingibjargar Elínar Halldórsdóttur í yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis, skv. 16. gr. laga nr. 112/2021, um kosningar.

Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að réttkjörin væri án atkvæðagreiðslu:

Sunna Axelsdóttir.


sérstök umræða.

Staða barnafjölskyldna.

Málshefjandi var Diljá Mist Einarsdóttir.


almannatryggingar, frh. 2. umræðu.

stjfrv., 155. mál (launavísitala). — Þskj. 161, nál. 437 og 704.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


útlendingar, 3. umræða.

stjfrv., 112. mál (afturköllun alþjóðlegrar verndar). — Þskj. 726, breytingartillaga 717, stöðuskjal 691.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, síðari umræða.

stjtill., 237. mál. — Þskj. 309, nál. m. brtt. 701, 700 og 663.

Umræðu frestað.


[23:49]
Útbýting þingskjala

Út af dagskrá voru tekin 7.–11. mál.

Fundi slitið kl. 23:51.