ÞINGSETNINGARFUNDUR.
þriðjudaginn 8. september 2026
kl. 2 miðdegis.
Árið 2026, þriðjudaginn 8. september, var hundrað fimmtugasta og áttunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundrað þrítugasta og fyrsta aðalþing í röðinni en hundrað sjötugasta og fjórða samkoma frá því er Alþingi var endurreist.
Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, prédikaði. Séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkirkjunnar, þjónaði fyrir altari og biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, lýsti blessun.
Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.
Þessir menn skipuðu þingið:
- Alma D. Möller, 3. þm. Suðvest.
- Arna Lára Jónsdóttir, 3. þm. Norðvest.
- Árni Helgason, 13. þm. Suðvest.
- Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 9. þm. Suðurk.
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 1. þm. Suðurk.
- Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest.
- Bryndís Haraldsdóttir, 5. þm. Suðvest.
- Dagbjört Hákonardóttir, 8. þm. Reykv. n
- Dagur B. Eggertsson, 4. þm. Reykv. n.
- Diljá Mist Einarsdóttir, 7. þm. Reykv. n.
- Eiríkur Björn Björgvinsson, 10. þm. Suðvest.
- Eydís Ásbjörnsdóttir, 6. þm. Norðaust.
- Eyjólfur Ármannsson, 2. þm. Norðvest.
- Grímur Grímsson, 10. þm. Reykv. n.
- Guðlaugur Þór Þórðarson, 2. þm. Reykv. n.
- Guðmundur Ingi Kristinsson, 6. þm. Suðvest.
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, 8. þm. Suðvest.
- Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk.
- Halla Hrund Logadóttir, 5. þm. Suðurk.
- Hanna Katrín Friðriksson, 3. þm. Reykv. n.
- Hildur Sverrisdóttir, 8. þm. Reykv. s.
- Inga Sæland, 4. þm. Reykv. s.
- Ingibjörg Davíðsdóttir, 4. þm. Norðvest.
- Ingibjörg Isaksen, 5. þm. Norðaust.
- Ingvar Þóroddsson, 7. þm. Norðaust.
- Ingveldur Anna Sigurðardóttir, 8. þm. Suðurk.
- Jens Garðar Helgason, 3. þm. Norðaust.
- Jóhann Páll Jóhannsson, 1. þm. Reykv. s.
- Jón Gnarr, 7. þm. Reykv. s.
- Jón Gunnarsson, 13. þm. Suðvest.
- Jón Pétur Zimsen, 11. þm. Reykv. s.
- Jónína Björk Óskarsdóttir, 14. þm. Suðvest.
- Karl Gauti Hjaltason, 4. þm. Suðurk.
- Kristján Þórður Snæbjarnarson, 9. þm. Reykv. s.
- Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, 10. þm. Reykv. s.
- Kristrún Frostadóttir, 1. þm. Reykv. n.
- Lilja Rafney Magnúsdóttir, 7. þm. Norðvest.
- Logi Einarsson, 1. þm. Norðaust.
- María Rut Kristinsdóttir, 6. þm. Norðvest.
- Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, 12. þm. Suðvest.
- Njáll Trausti Friðbertsson, 9. þm. Norðaust.
- Ólafur Guðmundur Adolfsson, 1. þm. Norðvest.
- Pawel Bartoszek, 9. þm. Reykv. n.
- Ragna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv. s.
- Ragnar Þór Ingólfsson, 5. þm. Reykv. n.
- Rósa Guðbjartsdóttir, 9. þm. Suðvest.
- Sigmar Guðmundsson, 7. þm. Suðvest.
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust.
- Sigmundur Ernir Rúnarsson, 11. þm. Reykv. n.
- Sigríður Á. Andersen, 6. þm. Reykv. n.
- Sigurður Örn Hilmarsson, 11. þm. Reykv. s..
- Sigurður Ingi Jóhannsson, 10. þm. Suðurk.
- Sigurður Helgi Pálmason, 7. þm. Suðurk.
- Sigurjón Þórðarson, 4. þm. Norðaust.
- Snorri Másson, 6. þm. Reykv. s.
- Stefán Vagn Stefánsson, 5. þm. Norðvest.
- Víðir Reynisson, 3. þm. Suðurk.
- Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 2. þm. Suðvest.
- Þorgrímur Sigmundsson, 8. þm. Norðaust.
- Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þm. Norðaust.
- Þórunn Sveinbjarnardóttir, 11. þm. Suðvest.
forseti Íslands setur þingið.
Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 8. september. Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið. Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi." Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.
Sönghópurinn við Tjörnina flutti Hjá lygnri móðu. Lag: Jón Ásgeirsson. Ljóð: Halldór Kiljan Laxness. Einnig: Þitt fyrsta bros. Lag: Gunnar Þórðarson. Ljóð: Ólafur Haukur Símonarson.
ávarp forseta Alþingis.
Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, ávarpaði þingheim.