2. fundur

miðvikudaginn 9. september 2026

kl. 7.40 síðdegis.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

Umræðurnar skiptust í tvær umferðir. Forsætisráðherra hafði 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu sex mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð höfðu þingflokkarnir einnig sex mínútur hver. Þingmaður utan flokka talaði í lok fyrri umferðar og hafði fimm mínútur.

Röð flokkanna var í báðum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkur.

Ræðumenn fyrir Samfylkinguna voru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk., í fyrri umferð, og Jens Garðar Helgason, 3. þm. Norðaust., í þeirri seinni.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í þeirri seinni.

Ræðumenn Miðflokksins voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest., í seinni umferð.

Fyrir Flokk fólksins töluðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í fyrri umferð og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í seinni umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu í fyrri umferð Stefán Vagn Stefánsson, 5. þm. Norðvest., og í seinni umferð Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þm. Norðaust.

Þingmaður utan flokka, Guðmundur Ingi Kristinsson, talaði í lok fyrri umferðar.


[21:11]
Útbýting þingskjala

Fundi slitið kl. 21:12.