varamaður tekur sæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Ragna Sigurðardóttir verði í fæðingarorlofi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Sigurður Örn Hilmarsson.
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir og Sigurður Örn Hilmarsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.