mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Guðrún Hafsteinsdóttir taki sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Njáls Trausta Friðbertssonar og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, það er nú varamaður hennar Sigurður Örn Hilmarsson, taki sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Guðrúnar Hafsteinsdóttur. Jafnframt taki Hildur Sverrisdóttir sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Njáll Trausti Friðbertsson taki sæti sem varamaður í stað Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í sömu nefnd. Þá taki Njáll Trausti Friðbertsson sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur og Hildur Sverrisdóttir taki sæti sem varamaður fyrir Njál Trausta Friðbertsson í sömu nefnd. Einnig að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, það er nú varamaður hennar, Sigurður Örn Hilmarsson, taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Njáls Trausta Friðbertssonar og Njáll Trausti Friðbertsson taki sæti sem aðalmaður í framtíðarnefnd í stað Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Einnig hefur borist erindi frá þingflokki Viðreisnar um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Ingvar Þóroddsson taki sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Maríu Rutar Kristinsdóttur en hún verði varamaður í sömu nefnd í stað Ingvars Þóroddssonar. Einnig að María Rut Kristinsdóttir taki sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Ingvars Þóroddssonar. Jafnframt að Grímur Grímsson taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Jóns Gnarrs en Jón Gnarr taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Gríms Grímssonar.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.