afbrigði um dagskrármál.
Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. 4. mgr. 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega og þeir hafi sæti næst inngangi í salinn og dragi innbyrðis um þessi sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.
Samkvæmt því eru þá sæti þingflokksformanna þessi: Bergþór Ólason hlýtur sæti 7, Guðmundur Ari Sigurjónsson hlýtur sæti 8, Ingibjörg Isaksen hlýtur sæti 22, Ólafur Adolfsson hlýtur sæti 44, Ragnar Þór Ingólfsson hlýtur sæti 23 og Sigmar Guðmundsson hlýtur sæti 45.
Þetta skoðast samþykkt.