157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Tekið er fyrir eina dagskrármálið, fjárlög 2026, stjórnarfrumvarp, 1. mál, þskj. 1, 1. umræða. Samið hefur verið um fyrirkomulag umræðunnar. Að lokinni framsöguræðu fjármála- og efnahagsráðherra gefst talsmönnum allra þingflokka kostur á að taka til máls. Almenn umræða verður eftir ræður talsmanna þar til um kl. 14, en þá mun forsætisráðherra fjalla um sína málaflokka og umræður fara fram um þá. Þetta er breyting á dagskrá en gerð í samráði og samkomulagi við þingflokksformenn. Almenn umræða heldur áfram eftir það fram til kl. 19 þegar fagráðherrar taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka. Almenn umræða um fjárlagafrumvarpið heldur áfram í kvöld eftir umræður um málefnasvið fagráðherra, ef þörf krefur. Á morgun munu umræðu fagráðherra um einstaka málaflokka halda áfram.