157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:51]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra getur alveg bókað það að við munum gera það sem við getum til að laga þetta frumvarp. Þá verða menn auðvitað að tala út frá staðreyndum. Staðreyndin er þessi: Hér eru á ferðinni mikil vonbrigði. Staðreyndin er sú að hér sögðu menn: Við ætlum að styðja Seðlabankann. Reyndar að nota sleggju, í einhverju kosningadæmi, sem aldrei hefur sést. Menn segja að þeir vilji ná hallalausum fjárlögum og ég vek athygli á því að það var gert ráð fyrir því í síðustu fjárlögum að hallinn yrði 62 milljarðar en svo kemur í ljós eins og staðan er núna að hann er 19 milljarðar. Það ætti að vera hægur vandi og við erum svo sannarlega til í það verkefni að ná niður þeim 19 milljörðum en ríkisstjórnin fór aðra leið. Hún ákvað að auka útgjöldin, hækka skatta og taka meiri lán. Ef hæstv. ráðherra er til í þá vegferð í fullri alvöru að ná niður útgjöldunum þá vantar ekkert hugmyndirnar í því. Við þurfum að forgangsraða. Það væri ágætt líka að setja aftur inn í 6. gr. heimild til að selja t.d. Landsbankann til að huga nú að börnunum okkar þannig að þau þurfi ekki að greiða skuldirnar.

Svo held ég, virðulegi forseti, að það sé mjög mikilvægt að setja hlutina fram eins og þeir eru. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju eru skuldaviðmiðin ekki sett fram eins og lög um opinber fjármál gera ráð fyrir? Af hverju er hæstv. ráðherra farinn að nota viðmið Evrópusambandsríkjanna, Maastricht? Af hverju er ekki stuðst við íslensk lög í framsetningu á þessu? Að vísu byrjaði ríkisstjórnin á því að brjóta þau, sem er gríðarlega alvarlegt mál. Sömuleiðis vil ég spyrja hæstv. ráðherra — ég vona að það gangi eftir en manni finnst margt vera svolítið bjartsýnt í upplegginu, t.d. er gert ráð fyrir því að ferðamönnum muni fjölga um 2% en aukningin á tekjum af þeim verði enn þá meiri. Ég hef ákveðnar áhyggjur (Forseti hringir.) af því sem hæstv. ráðherra fór yfir, hann var að tala um þetta háa raungengi og þá stöðu sem er í heiminum og fór (Forseti hringir.) ágætlega yfir það. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hefur hann engar áhyggjur af því að þessar forsendur kynnu að vera brothættar?