157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:53]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans síðari spurningu. Ég kannast að vísu ekki við þau lögbrot sem hann ræðir hér. Skuldaviðmiðin eru sett fram með ýmsum hætti og hafa birst með mjög fjölbreyttum hætti. Það er ýmis framsetning sem gagnast okkur í alþjóðlegum samanburði, önnur inn á við, og það að gera það með þeim hætti er á engan hátt undarlegt.

Hv. þingmanni varð tíðrætt um skattahækkanir. Ég vil biðja hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar, sérstaklega þá sem sátu í síðustu ríkisstjórn, að fara aðeins yfir þann lista áður en þeir gagnrýna mjög ákvarðanir þessarar ríkisstjórnar og átta sig á því að þær eru að stofninum til allar framhald af því sem síðasta ríkisstjórn lagði fram og því á engan hátt nýjar eða ófyrirséðar.