fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hólið. Mér er bæði ljúft og skylt að svara hans spurningu. Hann nefndi þennan mun í útgjöldum á milli ára og fór réttilega með það að laun og verðlagsbætur nema 44 milljörðum af þessari upphæð, vaxtagjöld nema 24 milljörðum, þ.e. breyting á þeim milli ára, fjárfesting 18 milljörðum og síðan eru aðrar breytingar upp á 37 milljarða.
Hvað varðar breytingar á gjaldtöku af umferð þá var sett það markmið á tímabili síðustu ríkisstjórnar að þessi tekjustofn myndi nálgast 1,7% af vergri landsframleiðslu. Fyrir liggja í frumvarpinu og í bandormi sem því fylgir breytingar á olíu og bensíngjöldum. Síðan fór það auðvitað svo í vor að lög um kílómetragjald, sem síðasta ríkisstjórn hafði raunar lagt fram, náðu ekki fram að ganga. Hugmyndin er sú að þau lög taki við því hlutverki, að þau umskipti verði á svipuðum forsendum og síðast, þ.e. að áhrifin á almenning verði óveruleg, en við gildistöku þeirra laga falli alfarið niður, eins og ég kom að í ræðu minni, bæði olíugjald og bensíngjald.