157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans ítrekuðu spurningu sem hann svaraði nú raunar sjálfur með 1,7% af vergri landsframleiðslu. Það kom skýrt fram í máli mínu að það er mikilvægt að það sé fyrirsjáanleiki í ákvörðunum hins opinbera. Ef við leggjum nú allan leikaraskap til hliðar erum við ekki næstum því eins ósammála og við höldum. Af hverju í ósköpunum ættum við að fara aðrar leiðir og skapa einhvers konar óvissu um hvernig þróunin verður á ríkissjóði á komandi misserum ef ákvarðanir fyrri ríkisstjórnar eru vel ígrundaðar, hafa fengið þinglega meðferð og eru góðar? Ég bara botna ekkert í þessu. Hvers konar eiginlega — eru átök í stjórnmálum eitthvert markmið í sjálfu sér? Ég botna ekkert í því heldur. Ég ræði hér við hv. þingmenn á kaffistofunni, indælisfólk og mér kemur ágætlega saman við það og við erum sammála um allflest. Ég skil ekki hvað er verið að fara hér.

Áherslur ríkisstjórnarinnar koma fram í þeim fjárfestingum og þeim viðbótum sem eru í frumvarpinu. Þær eru okkar. Áhersla á öryggi, áhersla á líf fjölskyldna og fyrirtækja í þessu landi.