fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna. Þeir sem þekkja mig geta nú kannski staðfest að það má túlka það þannig að útlit fjárlaga endurspegli karakter fjármálaráðherrans. Ég hef að jafnaði verið þekktur fyrir að vera frekar litlaus og þetta endurspeglar það. Eigum við ekki að segja að ég sé meðvitaður um þann eiginleika í mínu fari.
Þessi spurning hv. þingmanns gengur nokkuð í sömu átt og spurning hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Nú er það auðvitað þannig að við rekum þetta apparat, ríkið, til að fjármagna sameiginleg verkefni, sum þeirra mjög aðkallandi. Sá listi sem ríkisstjórnin hefur lagt fram og áætlun um hvenær hallaleysi er náð — sem ég ætla aftur að rifja upp að hv. þingmenn höfðu miklar efasemdir um þegar ég lagði fram fjármálaáætlun en eru núna á því að það hefði getað gerst miklu fyrr — hlýtur alltaf að taka tillit til þessa beggja; annars vegar hvaða verkefnum við getum ekki frestað, eru þess eðlis að það verður að ráðast í þau, og hvaða verkefni mega bíða. Það er síðan þingsins og fjárlaganefndar að yfirfara þessa forgangsröðun og setja fram sína skoðun á henni.