fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir svarið. Það sagði mér kannski ekki alveg allt, en allt í lagi. Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra nefnir, að það voru efasemdir um að þetta markmið myndi nást í fjármálaáætlun. Ef ég man rétt þá held ég að fjármálaáætlunin sjálf hafi ekki gert ráð fyrir því, eða hvort það var í einhverjum viðaukum. Það var alla vega orðið þannig að það var ekki bara minni hlutinn sem var kominn með efasemdir hér í vor um hvort þetta næðist eða ekki.
Þessar forsendur sem birtast hér eru gleðilegar. Við erum að sjá hér auknar tekjur sem við gerðum ekki ráð fyrir í fjármálaáætlun. Þótt mig kitli svolítið í puttana þá ætla ég að sleppa því að fara aftur í umræðu um fjármálaáætlun sem var ansi skrautleg. Þar voru ýmsar efasemdir, hæstv. ráðherra, hvort sem þær voru um tekjur eða gjöld eða útfærslu almennt. En ég ætla ekki að gera það, við ætlum ekki að byrja þingið á því.
Mig langar hins vegar í seinna andsvarinu einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra varðandi þessar aðhaldskröfur sem mér finnast vera óskýrar og óútfærðar, hvort og hvenær við megum eiga von á því að fara að sjá eitthvað betur ofan í það, þessar miklu aðhaldskröfur sem voru hér boðaðar, 107 milljarðar, ég man ekki hvað það var, á tímabilinu og hvenær ríkisstjórnin ætlar að fara að sýna okkur þingmönnum og fjárlaganefnd hvað í raun og veru er þar á bak við.