157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans spurningu og fagna því auðvitað að það sé viðurkennt að þessi áætlun var raunhæfari en margir töldu. Varðandi aðhaldskröfuna þá samanstendur hún annars vegar af 1% aðhaldskröfu á ákveðna hluta rekstrar, sem skilar um 2 milljörðum, og hins vegar 13 milljarða kr. sértækum sparnaði. Ég get glatt hv. þingmann með því að öll ráðuneytin hafa nú skilað yfirliti, sem liggur á heimasíðu þeirra, um hvaða verkefni þetta eru og hver staða þeirra er.

Það er líka gleðilegt að segja frá því að þrátt fyrir efasemdir þingmanna um að þessi áætlun væri raunhæf þá gerði hún í raun ráð fyrir 11 milljarða hagræðingu á þessu ári en nú, þegar við höfum hafist handa, höfum við uppfært það í 13 milljarða.