157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:10]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég vona að hæstv. ráðherra fylgist með umræðunni en það hefur nú verið svolítill plagsiður hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar að vera ekki á vettvangi þegar við ræðum þeirra eigin mál. Það er augljóslega mjög mikilvægt í þessu máli að hæstv. ráðherrar taki þátt í umræðunni, það er áhyggjuefni ef menn þurfa að hlaupa út um leið og umræðan byrjar.

Aðeins um fjármálaáætlun og fullyrðingar hæstv. fjármálaráðherra um það að menn hafi ekki trúað því sem þar væri. Svo því sé til haga haldið þá kynnir hæstv. fjármálaráðherra og þessi ríkisstjórn að það verði hallaleysi ef menn ná endum saman á næsta ári. Í meðförum þingsins er það meiri hluti fjárlaganefndar sem breytir því og setur halla í staðinn fyrir afgang. Segir líka að hann ætli að setja inn útgjöld sem eru ekki í fjármálaáætluninni og tilgreinir sérstaklega framlag til lífeyrissjóða út af örorkubyrði og sömuleiðis að fara með framlög til varnarmála upp í 77 milljarða á ári. Þetta er það sem meiri hlutinn segir þannig að ég átta mig ekki alveg á því hvað hæstv. fjármálaráðherra er að skensa hér stjórnarandstöðuna þegar við erum að ræða þessi mál. Og svo því sé til haga haldið þá er ekki hér í fjárlögunum það sem meiri hluti fjárlaganefndar sagði í umræðu um fjármálaáætlun að kæmi inn. Þá er ég að vísa í framlag til lífeyrissjóðanna út af örorkubyrði. Það mun að öllu óbreyttu þýða að þeir lífeyrisþegar sem eru með lægstu tekjurnar úr lífeyrissjóðum munu fá skerðingu. Og svo sannarlega eigum við mjög langt í land með að ná 77 milljörðum til varnarmála.

Aðalatriði málsins eru þessi: Þetta frumvarp eru gríðarleg vonbrigði. Þessi ríkisstjórn býr við þann munað að vera með stjórnarandstöðu sem er tilbúin til að styðja hæstv. ríkisstjórn í því að ná þeim markmiðum sem ríkisstjórnin sagðist fyrir kosningar ætla að ná og segir líka alla jafna, en kemur síðan með áætlanir sem standast ekki skoðun.

Virðulegur forseti. Það er bara mjög góð staða til að vera í. Þessi ríkisstjórn, þegar hún var að myndast, byrjaði á því að tilkynna þjóðinni að hún þyrfti að fá smá hlé á viðræðunum því að ástandið í ríkisfjármálum væri miklu verra heldur en var lagt upp með í fjárlagafrumvarpinu. Það er alrangt og kemur núna fram í gögnum ríkisstjórnarinnar. Það er rannsóknarefni af hverju menn koma með þær yfirlýsingar því það er ekki 62 milljarða halli eins og gert var ráð fyrir í fjárlögum. Staðan er miklu betri og eins og staðan er núna er gert ráð fyrir að halli á fjárlögum þessa árs sé 19 milljarðar. Ég held að flestir myndu nálgast það þannig að segja: 19 milljarðar af 1.600 milljarða fjárlögum, það ætti að vera hægur vandi að ná því niður. Það er slæmt að hæstv. ráðherra, sem er kominn í salinn, sé að snúa út úr þessu, sé með skens á sama tíma og hann talar yfir okkur sem hér erum.

Það er gríðarlega mikilvægt, eins og hæstv. ráðherra og forystumenn ríkisstjórnar tala alla jafna um, að ná þeim markmiðum að ná niður verðbólgu og vöxtum. Allt það sem hæstv. ráðherra segir um það, allt, er rétt. Ég get tekið undir hvert einasta orð. En síðan kynnir hæstv. ráðherra fjárlögin og þá fer ekki saman hljóð og mynd. Það liggur alveg fyrir að þessi fjárlög eru ekki að hjálpa Seðlabankanum við sitt verkefni.

Það er ekki bara það að hallinn sé mun minni og menn nærri því búnir að ná jöfnuði eins og fyrrverandi forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, vakti athygli á í síðustu stefnuræðunni sem hann hélt, heldur er það líka lítilmannlegt af stjórnarliðum að koma hér fram og vitna aftur og aftur í hallareksturinn sem var í því ástandi sem við öll sem búum hér á landi munum; þegar við vorum í Covid og við vorum með jarðhræringarnar í Grindavík. Þetta er sem betur fer farið og vonandi kemur aldrei aftur. En að tala um þetta eins og þetta hafi verið eitthvert eðlilegt ástand og þetta hafi verið einhver óráðsía hjá fyrrverandi ríkisstjórn er lítilmannlegt.

Það er sérstakt — virðulegi forseti, þessi klukka hérna er náttúrlega með ólíkindum, hún er búin að fara hérna upp í hálftíma, ég hélt ég hefði svolítinn tíma, og niður í 30 sekúndur. Er þetta liður í sparnaðaraðgerðum ríkisstjórnarinnar?

(Forseti (ÞSv): Nei. Forseti biðst velvirðingar á þessum tæknivanda en það er orðið tímabært að endurnýja þessa tækni í salnum.)

Já, það er tímabært líka að ég fái smá tíma til að tala. En aðalatriði málsins er þetta: Við erum að horfa á það að það er ríkur pólitískur vilji á þessu þingi til að ná þeim markmiðum sem lagt var upp með en menn eru því miður ekki að gera það með þessum fjárlögum. Ég tek undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni, það er vægast sagt sérkennilegt þegar hæstv. ráðherra svarar fyrir skattahækkanir með því að segja að síðasta ríkisstjórn vildi örugglega gera það. Það er það þannig, virðulegi forseti, að kílómetragjaldinu var hafnað á síðasta kjörtímabili, reyndar af þeim sem eru núna í stjórnarandstöðu. Og reyndar er það þannig með krónutöluhækkanirnar, sem við höfum svo sem sögu um í okkar stjórnartíð að hafa bæði gert það sem var rétt að gera, þ.e. minna af þeim, og stundum meira, að þegar núverandi stjórnarflokkar voru í stjórnarandstöðu þá töluðu þeir um að það væri verið að vaða í almenning þegar var farið í það að hækka þessar krónur.

Svo erum við að horfa á gríðarlega alvarlega stöðu á húsnæðismarkaði, virðulegur forseti. Þessir flokkar sem núna eru í ríkisstjórn virðast hafa sett sér það markmið að hækka húsnæðisverð hér í Reykjavík, sem hefur áhrif á allt landið og hefur áhrif á verðbólgu eins mikið eins og hægt er, með því að fara allar dýrustu leiðirnar. Það hefur gert það að verkum að ungt fólk á gríðarlega erfitt með að kaupa sér húsnæði. Nú koma þessir flokkar í ríkisstjórn og hvað gera þeir? Þeir taka út þá leið sem hefur reynst best fyrir þá sem eru að kaupa sér húsnæði og endurnýja húsnæði og það er séreignarleiðin. Við höfum tilkynnt það að við munum gera allt hvað við getum til að breyta því og koma með breytingartillögur þar um eins og annars staðar. Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að maður hlustaði fyrir kosningar á forystumenn stjórnarflokkanna tala um húsnæðismálin með þeim hætti að þau ætluðu nú að laga þetta allt saman en þá er þeirra fyrsta verk að taka út þá leið sem hefur hjálpað fólki á öllum aldri en sérstaklega yngsta fólkinu að eignast húsnæði. Reyndar er það þannig að það sem var samið um í kjarasamningum og var í fjárlögunum og skipti milljörðum er ekki þar lengur þannig að það ætti að auðvelda verkið. En það er ekki nóg, virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn virðist hafa það að markmiði að sjá til þess að fólk geti alls ekki keypt sér húsnæði nema fólkið sé auðmenn. Þannig er það, virðulegi forseti. Það er bara staðreynd.

Það sem þarf að gera er að við þurfum að forgangsraða, við þurfum að hagræða, við þurfum að sameina. Við þurfum að einfalda. Ég hef fylgst með því í forundran þegar allt í einu hlaupa hér hæstv. ráðherrar í beina útsendingu og segja frá stórkostlegum einföldunaraðgerðum — sem ég fagna — en gleyma að segja frá því að þær voru í fullum gangi. Þau voru að kynna skýrslu Ármanns Kr. Ólafssonar sem lá fyrir fyrir tveimur árum. Þetta er það eina sem við höfum séð á spilin. Frábært að halda áfram með það sem var löngu ákveðið og ég vona að hæstv. ríkisstjórn hafi styrk til þess. En betur má ef duga skal.

Ef hæstv. ráðherra ætlar að koma hér og segja alltaf þegar hann lendir í vandræðum: Þetta er síðustu ríkisstjórn að kenna, ég er bara að gera það sem síðasta ríkisstjórn sagði mér að gera, þá bið ég hann að alla vega segja frá því og vísa líka á það þegar kemur að hagræðingu, sameiningu, útboðum og öðru slíku sem var löngu hafið áður en hæstv. ráðherra settist í ríkisstjórn.

Það er hins vegar ekki þannig hvað varðar þessa skatta sem hann vísaði hér til að það hafi verið samstaða um að fara með þá eins og hæstv. ráðherra er að gera. Ég trúi því, virðulegur forseti, að ef hæstv. ráðherra og ríkisstjórn vilja í alvöru lækka skuldir og koma í veg fyrir það að unga fólkið þurfi að bera þungann af eyðslu samtímans þá fari menn í að setja aftur inn heimild til að selja eignir sem er nauðsynlegt til að taka niður skuldabunkann.

Virðulegi forseti. Það mun ekki standa á okkur í stjórnarandstöðunni til að koma með tillögur og við munum koma fram með tillögur. Vonandi er hægt að ná samstöðu um þetta en það liggur alveg fyrir að upplegg ríkisstjórnarinnar um aga og aðhald og að hjálpa Seðlabankanum kemur ekki fram í þessum fjárlögum. (Forseti hringir.) Hér er halli. Hér er skuldasöfnun. Hér eru skattahækkanir og aukin útgjöld. Ef það er sátt um það í þessum sal, virðulegi forseti, að breyta því þá fagna ég því og við munum leggja allt á okkur sem við mögulega getum til að aðstoða við það.

(Forseti (ÞSv): Forseta þykir leitt að klukkan í stólnum virðist ekki alveg láta að stjórn en hv. þingmaður fékk þann tíma sem honum bar.)