157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ágæta ræðu. Það er svo sem ekkert sérstakt hlutverk mitt að bera blak af fyrri ríkisstjórn, mér þótti hún ekki góð að öllu leyti og reyndar býsna slæm á köflum. En ég sit eiginlega í forundran hér úti í sal og næ ekki alveg utan um þetta í ljósi þeirrar áherslu hæstv. ráðherra, kannski sérstaklega forsætisráðherra og vissulega fjármálaráðherra á köflum, að lýsa þeirri skelfilegu stöðu sem ríkisstjórnin tók við og segja að verkfærið sem þyrfti til að ná tökum á þeirri stöðu kallaði á notkun sleggju, sem hefur svo sem komið á daginn að er einhvers lags gúmmísleggja. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort þessi mynd sem teiknast upp hér núna hjá hæstv. fjármálaráðherra, að mál hafi bara verið býsna vel ígrunduð og vel útfærð á fyrra kjörtímabili af fyrri ríkisstjórn, og nú sé bara haldið áfram á þeim nótum — er þetta, því að nú situr hv. þingmaður í fjárlaganefnd, í einhverjum takti við umræðu sem hefur átt sér stað varðandi framlagningu og afgreiðslu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar á síðasta þingvetri og í takti það sem rætt er í fjárlaganefnd? Þetta eru alveg nýjar upplýsingar fyrir mig. Vissulega var hin nýja ríkisstjórn til að byrja með í einhvers lags skjóli af þessum fyrstu fjárlögum sem fyrri ríkisstjórn klaufaðist til að samþykkja undir þinglok á þarsíðasta þingi. En nú birtast hér fjárlög og skilaboðin eru bara: Heyrðu, þetta var allt í syngjandi fínu standi og við ætlum bara að halda áfram í sama takti. Mig langar bara að spyrja hv. þingmann sem fjárlaganefndarmann og þingmann sem hefur fylgst vel með þessu: Kemur það hv. þingmanni á óvart að þessi tónn sé sleginn núna?