157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Til að svara síðustu spurningunni, hvort þetta komi mér á óvart, þá er stutta svarið að þegar kemur að málflutningi hæstv. ráðherra í þessari ríkisstjórn þá kemur mér ekkert lengur á óvart. Það er hárrétt sem hv. þingmaður nefndi, að þessi ríkisstjórn hefur gengið þannig fram að hún sagði fyrir kosningar að allt væri í kaldakoli. Í miðjum stjórnarmyndunarviðræðum gerðu þau hlé á þeim af því að allt væri í kaldakoli. Svo koma þau núna og segja — það er að vísu alveg í anda fjármálaráðs og umsagnaraðila að staðan sé góð — en hún betri heldur en þau ætluðu, hallinn er minni.

Það er að vísu ekki nýtt vegna þess að ýmislegt má segja um síðustu ríkisstjórn en hún var aldrei með áætlanir sem stóðust ekki á þann veg að þær væru of bjartsýnar. Það kom reyndar á daginn að afkoman var iðulega miklu betri heldur en gert var ráð fyrir — svo nam 100 milljörðum, ef ég man rétt, sem er nú ekki lítil upphæð. Fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, sagði í setningarræðu sinni að hann teldi að hægt væri að ná hallalausum fjárlögum og það er ekkert útilokað að fjárlög þessa árs verði það. En það er algerlega nýtt, eins og hv. þingmaður benti á, að núna komi forystumenn þessarar ríkisstjórnar, sem eru þá búin að taka U-beygju, og séu farin að segja að hér sé allt í blóma, að allt sé bara eins og best verði á kosið og reyndar sé það þannig að allar áætlanir fyrri ríkisstjórnar hafi verið svo góðar að þau ætli að koma þeim áleiðis. Að vísu stemmir það ekki alveg þegar vísað er í skattana, ég kannast ekki við það, og allir geta flett því upp hvernig fór t.d. með frumvarpið um kílómetragjaldið í meðförum þingsins síðasta haust.

Ég hjó eftir því sama og hv. þm. Bergþór Ólason, að það er kominn nýr tónn í stjórnarliðið (Forseti hringir.) og hann er ekki í neinu samræmi við það sem þau sögðu fyrir kosningar eða eftir að þau tóku við.