fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er kannski svolítið í takti við það sem ég reiknaði með í ljósi þess hversu hissa ég er á þeim tóni sem hér er sleginn eftir þá hörðu gagnrýni sem hafði komið fram á efnahagsstjórn fyrri ríkisstjórnar, bæði í aðdraganda kosninga og í kosningabaráttunni, í stjórnarmyndunarviðræðunum og allar götur síðan. Þessi tónn hefur verið sleginn alveg þangað til í dag, þangað til áðan. Það er stórmerkilegt að þetta skuli eiga sér stað hér við þessa 1. umræðu fjárlaga. Það er einhver kúvending í gangi hvað sýn hæstv. fjármálaráðherra á ríkisfjármálin varðar og á það með hvaða hætti mál hafa rekist á fyrri stigum. Maður veltir hreinlega fyrir sér hvort það þurfi að kalla eftir einhverri greiningu, sundurgreiningu, eins og ég gerði hér áðan í andsvari við hæstv. ráðherra þar sem ég óskaði eftir því að hann upplýsti hvaða hlutfall af þessari útgjaldaaukningu færi til fjárfestinga og hvaða hlutfall til rekstrar. Það kemur á daginn að 15% af útgjaldavextinum fara til rekstrar í verkstjórninni miklu.
Telur hv. þingmaður sem nefndarmaður í fjárlaganefnd að vinnan fram undan verði öðruvísi, bæði hvað flækjustig og umfang varðar, í ljósi þess að svona hátt hlutfall aðgerða sem hér er lýst er sagt vera á grundvelli ákvarðana og stefnumörkunar fyrri ríkisstjórnar? Verður fjárlaganefnd mögulega með verkminnstu nefndum þetta haustið, og ekki endilega í neikvæðum skilningi? Þetta er slík gjörbreyting sem hér er að koma fram að það vekur athygli og furðu, og raunar forvitni, að þetta sé staðan.