157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:29]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég og hv. þm. Bergþór Ólason erum sammála. Það var áhugavert þegar hæstv. fjármálaráðherra sagði: Heyrðu, við erum ekkert ósammála hérna í þessum sal. Og maður hugsaði með sér: Af hverju voru þessir flokkar að bjóða fram? Þeir eru oft bara að flykkja sér bak við ríkisstjórnarflokkana því að nú kemur í ljós þegar fyrstu fjárlögin sem þessi ríkisstjórn semur eru lögð fram, að hún telur að hún sé að gera allt það sem síðasta ríkisstjórn vildi gera. Það er hins vegar ekki rétt og reyndar er það þannig — af því að það er rétt í gagnrýninni að það voru mismunandi skoðanir innan síðustu ríkisstjórnar. Það liggur alveg fyrir að t.d. sjónarmið okkar Sjálfstæðismanna urðu ekki alltaf ofan á og langur vegur frá. Það er líka rétt að þessi ríkisstjórn í þessu fjárlagafrumvarpi hefur aukið útgjöldin, ætlar að auka útgjöldin, ætlar að hækka skattana og ætlar, þrátt fyrir að vera í dauðafæri að ná hallalausum fjárlögum, að sleppa því og er búin að nota þessa svokölluðu stöðugleikareglu sem gólf, sem varað var við, en ekki þak. Það er gríðarlega alvarlegt.

Varðandi vinnuna í hv. fjárlaganefnd þá vonast ég til — ég veit ekkert hvort þau skipti um skoðun á morgun en við erum ekki komin hér til að fylgja eftir því sem við vorum ósammála um í síðustu ríkisstjórn, svo mikið er víst — að það verði starf í nefndum og þar á meðal hv. fjárlaganefnd. Ég var ekki að koma hérna í gær en ég hef aldrei upplifað vinnu í nefndum eins og núna, aldrei. Mér misbýður þegar það eru kallaðir til sérfræðingar sem útskýra fyrir almenningi hvað sé að gerast á Alþingi Íslendinga, að menn bendi ekki á þessa grundvallarbreytingu. Margoft hafa frumvörp verið allt að því endurskrifuð, send aftur til ríkisstjórnar af því að þau eru ekki tilbúin og alltaf, ég tala nú ekki um í stærri málum, þá hafa menn farið gaumgæfilega yfir þau. (Forseti hringir.) Það hefur ekki verið gert í hv. fjárlaganefnd á þessum mánuðum sem liðið hafa eftir kosningar. Ég veit það, þó að ég sé ekki í öðrum nefndum, veit það af frásögnum, (Forseti hringir.) að það hefur svo sannarlega ekki verið gert þar.