fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir að að koma aftur með fyrirspurnina. Mér fannst bara rétt í fyrra andsvari að fara yfir þetta sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson nefndi varðandi skuldirnar, að leiðrétta það varðandi frumvarpið og svo minna aðeins á þetta með planið. Ég skal viðurkenna það að mér finnst það vera svolítið mál þegar það kemur einn flokkur sem vinnur góðan sigur á ákveðnum forsendum, mér finnst það skipta máli að svo kemur í ljós að það var engin innstæða.
Svo skulum við bara fara í þennan þátt sem hv. þingmaður vísaði til. Það hefur verið stefna Sjálfstæðisflokksins — og það er ekkert nýtt, Sjálfstæðisflokkurinn var í forystu um það þegar t.d. Hvalfjarðargöngin voru byggð og það var pólitísk barátta. En sem betur fer höfðum við Sjálfstæðismenn og aðrir sigur þar og höfum ekkert legið á því, eins og hv. þm. Jón Gunnarsson vísaði í í Morgunblaðinu, að ef við ætlum að fara í það sem þarf, alvöruinnviðauppbyggingu, þá verða menn að nota veggjöld í mörgum af þessum framkvæmdum sem þarf að fara út í. Það liggur alveg fyrir.
Hv. þingmaður getur ekki komið hér og sagt að ef hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins og annarra flokka eru að vinna vinnuna sína, benda á galla á framkvæmd — af því að kílómetragjaldið er ekki það sama og þegar menn eru að borga veggjöld þegar menn eru að keyra og nýta ákveðnar framkvæmdir. Þegar hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins bentu á galla við viðkomandi frumvarp og bentu á ýmsa þætti þar þá var það vegna þess að hv. þingmenn eru að vinna vinnuna sína. Það er samt líka þannig að kjarni máls er sá að þessi ríkisstjórn, þessir flokkar sögðu þjóðinni fyrir kosningar: Við ætlum ekki að hækka tekjuskatt, við ætlum ekki að hækka skatta á almenning. Og nú er það komið í ljós að það var ósatt. Þetta eru svikin kosningaloforð.