fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Þá er það staðfest, þetta eru ekki hallalaus fjárlög. Hv. þingmaður kýs að skauta fram hjá því að fjárlögin voru afgreidd þannig á þessu ári að þau voru með 62 milljarða halla. Tekjurnar hafa sem betur fer verið miklu meiri þannig að eins og staðan er núna þá eru það 19 milljarðar. Það eru því breyttar forsendur og hefði verið kjörið fyrir hæstv. ríkisstjórn að ná hallalausum fjárlögum en hún ákvað að gera það ekki. Við erum sammála um einskiptissöluna á Íslandsbanka en það væri áhugavert ef hv. þingmaður vildi vera svo vænn að svara því hvaða skoðun hann hefur á því og hvort hann er einlægur fylgismaður þess að hætta að styðja þá sem eru að kaupa sér húsnæði, þá í annað skipti eða oftar, og hefur reynst einstaklega vel. Við þekkjum ástandið á húsnæðismarkaðnum, við skulum ekkert fara í orsök þess núna. En hv. þingmaður vildi ekki svara því hvort hann væri því fylgjandi.
Af því að hv. þingmaður er að vísa til lækkunar skulda sem kemur til út af því að við seldum Íslandsbanka í góðri sátt í þinginu, vill hv. þingmaður þá ekki ganga lengra í að selja eignir til að ná sömu markmiðum?