fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Ég hlakka til að vinna þetta frumvarp áfram í fjárlaganefnd og fá gleggri og dýpri mynd af því sem er þar inni. Ég er hins vegar á svipuðum slóðum og hv. þingmenn Guðlaugur Þór Þórðarson og Bergþór Ólason, sem voru hér áðan, varðandi útgjaldavöxtinn. Það er alla vega skrýtin reikniregla að halda því fram að með þessu frumvarpi sé verið að halda aftur af honum. Menn eiga bara að tala hreint út í þessum ræðubút og tala um hlutina eins og þeir eru. Ég held að það sé betri bragur á því fyrir okkur alla.
Eins hef ég áhyggjur og mig langar að spyrja — en ég svo sem ætla ekki að fara meira út í þennan útgjaldavöxt, við náum ekkert lengra þar — varðandi þessa stöðu sem uppi er í efnahagsmálum, virðulegur forseti. Aðhaldsstig þessara fjárlaga sem hér eru lögð fram er 0,2%, sýnist mér samkvæmt frumvarpinu. Við lögðum fram frumvarp fyrir einhverjum árum síðan — ég var að reyna að rifja upp hvort það var 2023 og ég held að það hafi verið 2023 frekar en 2022 — sem var með 0,3% aðhaldskröfu og þá komu sérfræðingar fyrir fjárlaganefnd sem sögðu að það væri hlutlaust. 0,3% þýddu að það væri hlutlaust, mögulega með einhverri aðhaldskröfu. 0,2% geta því ekki annað en þýtt að þetta frumvarp er ekki aðhaldssamt. Hvort hv. þingmaður hafi ekki áhyggjur af því miðað við þá stöðu sem uppi er í efnahagsmálunum, með vextina og verðbólguna eins og það er núna, að leggja hér fram frumvarp sem er ekki með nægilegu aðhaldi. Hvaða skilaboð er þingið að senda?
Ég gæti staðið hérna í smástund lengur, (Forseti hringir.) og talað, virðulegur forseti, meðan hv. þingmaður fær skilaboðin frá hæstv. fjármálaráðherra.