fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir þetta andsvar eða vangaveltur og umræður um aðhaldsstig og það er sjálfsagt að taka þá umræðu líka í fjárlaganefndinni á grundvelli talna og prósentna. Ég þekki það býsna vel að þegar maður stillir upp svona fjárhagsáætlun þá ertu að bæta við ákveðnum liðum sem eru gefnir, eins og t.d. launahækkanir sem samið hefur verið um fyrir það ár, verðlagsforsendur, og þetta hækkar tölurnar þótt þetta auki kannski ekki svigrúmið hjá viðkomandi stofnunum. Á móti, til þess að koma því fyrir í rammanum eða stakknum sem þér er sniðinn, geturðu þurft að skilgreina aðhaldskröfu. Aðhaldið yfir heildina með þessum launahækkunum og verðlagsforsendum inni getur reiknast sí og svo en það er alveg klárt og því mun fólk finna fyrir, bæði í umræðunni en líka við stjórn ríkisstofnana, að það er umtalsvert aðhald innifalið í þessu frumvarpi. Annars værum við ekki að ná þessum árangri. (Gripið fram í.)— Einhvers konar sögulegur samanburður við fyrri ár þar sem er tímabundin frestun einhvers eða niðurfelling, t.d. á nauðsynlegum samgönguviðhaldsframkvæmdum eða innviðaframkvæmdum, það er ekki aðhald sem við viljum. Við erum að plata okkur ef við sleppum því að fjárfesta í grunninnviðum samfélags árum saman. Þetta jafnvægi verðum við að finna og það er ekki alveg einfalt, það er ekki alveg augljóst en tekst með vinnu. Mér finnst fjármálaráðherra og ríkisstjórninni hafa tekist vel með þessu frumvarpi. Ég hlakka líka til áframhaldandi vinnu inni í fjárlaganefnd við að kryfja þetta til mergjar og ræða þetta málefnalega, eins og mér finnst þingmaðurinn gera. Ef þessar áhyggjur eru miklar þá kannski teflir þingmaðurinn fram einhverjum aðhaldshugmyndum til viðbótar, sem sjálfsagt er að fara yfir (Forseti hringir.) þó að ég lofi engu í því frekar en að það sé mitt að lofa einhverjum útgjaldaauka þar sem þrengir að.