157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:09]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held að við hv. þingmaður þurfum að taka betri umræðu um þetta í nefndinni. Þetta var ekki alveg skýrt. Ég skildi eitthvað af þessu en loðið var það. Það er einfaldlega þannig að aðhaldsstigið í þessum fjárlögum er 0,2%, (Gripið fram í.)það er það sem ég er að benda á. Miðað við það sem Seðlabankinn og fleiri hafa bent á erum við að kalla eftir því að aðhaldið verði meira. Það er einfaldlega staðan sem uppi er.

Mig langar hins vegar í síðara andsvari, þar sem tíminn flýgur, að nefna hér að hv. þingmaður talaði um að skuldahlutfallið væri 59 og væri að fara niður í 50. Samkvæmt fjárlögunum er þetta 38 og er að fara niður í 37. Það stendur í bókinni og er bókin ekki Biblían okkar? Það er mikilvægt að við séum að fara með og tala um sömu tölurnar og ég held að bókin eigi að ráða í því, bara góð ábending til hv. þingmanns. (Forseti hringir.)

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því í þessu öllu saman, þar sem tekjurnar eru að aukast um nærri því 100 milljarða, 91 milljarð, að við séum að auka skuldir að nafnvirði um 80 milljarða í þessum fjárlögum. Er það ekki svolítið bratt?