fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið og það að koma inn á þessar tvær mismunandi leiðir til að reikna skuldahlutfall fyrir ríkissjóð. Þar eru annars vegar tölurnar sem ég var að fara með, úr 59 í 50%, sem er hin alþjóðlega viðurkennda aðferð, stundum kennd við Maastricht, sem öll greiningarfyrirtæki og allir erlendir aðilar nota til að bera saman ríki. Þar erum við að lækka svona. Það var hins vegar búin til séríslensk aðferð og við kölluðum eftir upplýsingum um þetta í fjárlaganefnd síðastliðið vor í tengslum við gerð laga um opinber fjármál þar sem ýmsir liðir voru notaðir til frádráttar á þessum skuldum og lækkaði þá hlutfallið. Það er ekki beinlínis skynsamlegt ef þú ert að bera þig saman við önnur lönd því að fyrir vikið hef ég heyrt fjölda þingmanna halda því blákalt fram í ræðum að skuldahlutfall Íslands sé miklu lægra en margra nágranna okkar. Það er rangt vegna þess að þeir eru að horfa á þessa séríslensku tölu í staðinn fyrir að horfa á alþjóðlegu samanburðartöluna sem setur okkur (Forseti hringir.) í kringum meðaltalið, lægra en Finnland en fyrir ofan t.d. öll hin Norðurlöndin. (Forseti hringir.) Þess vegna finnst mér miklu gagnlegra að nota þá tölu enda getum við þá borið okkur saman við aðrar þjóðir, annars ekki.