157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir brýningu og hvatningu. Ég vil kannski leiðrétta það sem ég myndi segja að væri liðugt krítað varðandi þensluhvetjandi áhrif þessara fjárlaga. Tilfellið er að þau eru í fullu samræmi við fjármálaáætlun og í fjármálaáætlun var gert ráð fyrir að þessi fjárlög yrðu hlutlaus. Þau eru hlutlaus. Viðbrögð skuldabréfamarkaðarins síðan fjárlögin hafa verið kynnt sýna að það er ekki mat markaðarins að þau séu verðbólguhvetjandi heldur þvert á móti. Ég vildi gjarnan spyrja þingmanninn á hverju hann byggi þessar fullyrðingar sínar.

Ég vil líka taka fram að aðhaldsstigið sem kom fram í fjárlögunum 2024 og 2025 helgaðist fyrst og fremst af því að tímabundnir liðir voru felldir niður, þ.e. það voru engar sérstakar aðgerðir til þess að draga úr vexti ríkisins heldur voru þetta einfaldlega aðgerðir í tengslum við Covid annars vegar og áföllin vegna eldsumbrotanna á Reykjanesi hins vegar sem féllu niður. Eins og þensluáhrif fjárlaga eru mæld þá kemur það út eins og aðhaldsstig en er það í sjálfu sér ekki heldur einungis leiðrétting á því sem var þensluhvetjandi ákvörðun fortíðarinnar.

Ég ítreka að þessi túlkun hv. þm. Bergþórs Ólasonar kemur mér á óvart og ég vildi gjarnan fá að vita á hverju hann byggir hana.