157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Ég hrósa hv. þingmanni fyrir að benda á hið augljósa, að það sé ekki hægt að ræða húsnæðismálin án þess að tala um framboð á húsnæði, sem er á ábyrgð sveitarfélaganna og sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Ég hvet hv. þingmann, af því að nú er hans flokkur er kominn í meiri hluta í borgarstjórn Reykjavíkur, til að snúa af þessari hræðilegu stefnu sem hefur leitt til þess að það geta nær bara auðmenn sem eiga ekki bíla keypt húsnæði í Reykjavík, og fara þess í stað þá leið sem hefur verið gert undanfarna áratugi, ætli það sé ekki árhundrað, að ryðja hér nýtt land og búa til ný hverfi. Ég held hins vegar að það þurfi ekki neina sérstaka hvata. Ef við þurfum hvata til þess þá eru mörg sveitarfélög hér í grenndinni, og reyndar á höfuðborgarsvæðinu líka, sem við skuldum mikið því að þetta hefur verið bundið meira við Reykjavík.

Ég vil hins vegar spyrja hv. þingmann út í tvennt. Hv. þingmaður var lengi forystumaður í stærsta verkalýðsfélagi landsins, mikið inni í lífeyrismálunum. Í meirihlutaáliti fjárlaganefndar var sérstaklega tekið á því að það þyrfti að nálgast það verkefni að bæta einhvern veginn þeim lífeyrissjóðum, sem eru með hæstu örorkubyrðina innan sinna raða, það að hætta að greiða þar inn, sem mun þýða það að þeir lífeyrisþegar sem eru með lægsta lífeyrinn munu fá lækkun á sínum lífeyri. Þeir sem minnst mega sín í lífeyrissjóðunum fá lækkun ef ekkert verður að gert. Þess sjást hins vegar engin merki í fjárlagafrumvarpinu. (Forseti hringir.) Þannig að ég spyr hv. þingmann um hans skoðun á því og hvað hefur gerst þarna á bak við luktar dyr ríkisstjórnarinnar þegar kemur að þessu máli.