157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá var í upphafi þessarar aldar, ég held ég fari rétt með, örorkubyrðin sett inn í lífeyrissjóðina, alla vega á einhverjum tímapunkti, af því að upphaflega áttu lífeyrissjóðirnir fyrst og fremst að sjá fólki fyrir lífeyri. Örorkubyrðin leggst hins vegar misjafnlega á sjóði. Hv. þingmaður vísaði til þess að sjóðir þar sem fólk er almennt með lág laun, oft sjóðir sem hann kallaði verkamannasjóði, sem ég held að sé réttnefni, er örorkubyrðin mikil þannig að þegar sjóðirnir eru að greiða og reikna út lífeyrinn fyrir sitt fólk, annars vegar örorkulífeyri og hins vegar lífeyri, og þegar örorkan er há í einhverjum sjóði þá kemur það niður á þeim sem þurfa að fá greiðslur, hinn hefðbundna lífeyri.

Hv. þingmaður vísaði til þess að það var gagnrýnt gríðarlega þegar víxlverkunarfrumvarpið kom fram, að þetta yrði enn þá ójafnara. En án víxlverkunarfrumvarpsins er þetta enn þá ójafnt. Ég hef tekið eftir í málflutningi fyrrverandi kollega hv. þm. Ragnars Þórs Ingólfssonar, Vilhjálms Birgissonar, sem er að stýra verkalýðsfélaginu á Vesturlandi, á Akranesi. Hann heldur því fram að núna, án víxlverkunarfrumvarpsins, þýði þetta að það fólk sem tekur lífeyri úr þessum sjóðum, sem er 15% lægri lífeyrir en t.d. hjá þeim sem eru í Lífeyrissjóði verslunarmanna þar sem örorkubyrðin er ekki jafn há — þannig að þetta er ekki bundið við víxlverkunarfrumvarpið. Víxlverkunarfrumvarpið myndi auka vandann enn frekar eða þetta misræmi.

Ef marka má forystumenn verkalýðshreyfingarinnar, sérstaklega þennan forystumann sem ég vísaði hér til, og það hefur verið krafa lífeyrissjóðanna og verkalýðshreyfingarinnar fram til þessa að þetta sé jafnað og menn hafa ekki fundið aðra lausn en að gera það í gegnum ríkissjóð, þá erum við enn þá með þennan (Forseti hringir.) vanda. Með víxlverkunarfrumvarpinu væri hann bara enn þá meiri. Ég spyr þess vegna hv. þingmann, vegna þess að hann tók á þessu eða meiri hlutinn í fjárlaganefnd (Forseti hringir.) en þess sér ekki merki núna í fjárlögunum: Mun ekki verða komið neitt til móts við þetta þannig að mismunurinn á þessum lífeyrisgreiðslum verði þá — getur fólk gert ráð fyrir því?