157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:48]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef í sjálfu sér ekki sannreynt þessa tölu sem þú bendir á varðandi 15% lækkun lífeyris. Ég get ekki alveg svarað því hvort hún sé rétt eða hvort það sé þá tekið mið af þætti almannatrygginga í greiðslu lífeyris til tekjulágra þar sem greiðsla úr lífeyrissjóðum hefur auðvitað áhrif á lægri greiðslur úr lífeyrissjóðum og hærri greiðslur frá almannatryggingum o.s.frv. Ég rengi ekki þessa tölu en hins vegar hef ég ekki sannreynt hana.

Til að reyna að svara þessari spurningu þá er mín skoðun alveg klárlega sú að það þurfi að leysa vanda þessara sjóða og það er auðvitað sanngirnismál að gera það. Ég er boðinn og búinn í það samtal og að beita mér fyrir því að það verði gert. En ég tel skynsamlegt að skoða þetta í stærra samhengi, einmitt út frá víxlverkun því að hún hefur áhrif á ákveðna hópa og skilur þá eftir líka, að þetta verði gert heildstætt og sem allra fyrst vegna þess að það skiptir máli, því fyrr því betra, að þetta mál verði leitt til lykta.