157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:54]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í seinna andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann út í atriði sem ég nefndi í ræðu minni áðan. Mig langar að heyra afstöðu hv. þingmanns og eftir atvikum, ef hann er í færum til, afstöðu Flokks fólksins til þessara gríðarlegu gjalda- og skattahækkana sem nú hafa verið boðaðar á akstur og ökutæki sem eru samanlagt samkvæmt fjárlagafrumvarpinu tæpir 11 milljarðar. Hlutfallslega leggst þetta þyngst á þá sem minnst hafa á milli handanna en þurfa að nota bíl í sínu daglega lífi. Mig langar því til að spyrja: Styður Flokkur fólksins þessa miklu gjalda- og skattahækkun á akstur og ökutæki?