fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir andsvarið og fyrir að koma hér og eiga orðastað við mig. Ég kann vel að meta það. Það voru ekki mín orð, hæstv. ráðherra, að það væri ekki aðhald í fjárlögum. Ég geri mér fulla grein fyrir því, það litla sem ég hef komist í gegnum þessi litlausu fjárlög, að auðvitað er aðhald í fjárlögunum. Það sem ég hef áhyggjur af og er að miða við, hafandi verið í fjárlaganefnd í nokkur ár, er að það hefur verið eitt af stóru verkefnunum okkar að fjárlög hvers árs hafa ekki náð að tala nægilega vel við peningamálastefnu Seðlabankans varðandi aðhaldsstig ríkisfjármála. Það eru ýmsar ástæður fyrir því eins og hæstv. ráðherra kom hér inn á. Það sem ég er einfaldlega að benda á, og það er engin meining í því önnur en sú að ég er að benda á það, er að aðhaldsstigið er 0,2% sem varla telst aðhald samkvæmt þeim skilgreiningum sem við höfum fengið inn í fjárlaganefnd. Þetta veit hagfræðingurinn og fjármála- og efnahagsráðherra betur en sá sem hér stendur. Það er bara þetta sem ég er að tala um og það er þetta sem ég er að benda á. Ég hef þess vegna áhyggjur af því vaxtalækkunarferli sem nú er orðið stopp, hvernig við náum þessu. Það er ekki verkefni hæstv. ráðherra eins og sér, það er verkefni okkar allra eins og ég kom inn á í opnunarræðu minni. Þess vegna er ég að ávarpa þessar áhyggjur mínar hér og nú. Við þurfum öll að finna leiðir til að koma okkur í gegnum þetta. Ég er ekki með útfærðar hugmyndir að þessu aðhaldi á fyrsta degi fjárlagafrumvarpsins en ég mun svo sannarlega leggja mitt af mörkum í fjárlaganefnd til þess að koma með þær sé það vilji nefndarinnar og hæstv. ráðherra.