fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir síðara andsvarið. Ég er algerlega sammála hæstv. ráðherra í því að uppgjör ÍL-sjóðs var gríðarlega mikilvægur áfangi og fyrir það ber að þakka. Ég vona svo sannarlega að sú lausn sem þar náðist verði farsæl fyrir okkur til lengri tíma litið. Ég held það. Við vitum að auðvitað hefur það áhrif þegar svona upphæðir koma inn — þetta fer inn í A1 — og breyta stöðunni. En það breytir ekki því að í litlausri bók hæstv. ráðherra er þetta talan sem er gefin upp yfir skuldahækkun. Við sitjum bara uppi með þá staðreynd báðir, bæði sá sem hér stendur og rithöfundurinn, það er nú bara þannig.
Ég er loksins núna farinn að átta mig á þessum mismunandi uppgjörsreglum okkar sem við erum að tala um í fjárlaganefnd, hvort sem það er IPSAS eða GFS eða hvað sem þetta er allt saman. Það sem ég vildi einfaldlega segja, og var að benda hv. þm. Degi B. Eggertssyni á, er að það er ruglingslegt, bæði fyrir þingmenn sem eru kannski ekki inni í þessu eins og við sem erum í fjárlaganefnd, eða sá sem situr á ráðherrabekknum, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, þegar við erum ekki að nota sömu viðmið. Fólk ruglast, bæði við og fólk sem er að hlusta á okkur. (Forseti hringir.) Ég ætla því að stinga upp á því að höfundur litlausu bókarinnar (Forseti hringir.) noti þær tölur sem hann setti þar inn þannig að við lágmörkum þann rugling (Forseti hringir.) og misskilning sem getur orðið ef við erum að nota önnur viðmið en koma fram í frumvarpinu sem við ræðum hér. Annars þakka ég hæstv. ráðherra kærlega fyrir góða hlustun.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)