fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirtaksræðu. Ég tek undir mikilvægi verkefnisins sem hún fór hér mjög ítarlega yfir í sinni ræðu varðandi börn með sértækan vanda sem er mjög brýnt að taka fast á og ég vona það verði niðurstaðan og ég held að við séum öll sammála. Það sem mig langaði hins vegar að koma hingað upp og vekja aðeins athygli á og spyrja hv. þingmann um er varðandi það sem hv. þingmaður kom inn á í upphafi ræðu sinnar og ég kannast ekki alveg við; þingmaðurinn ræðir hér um að það hafi verið fjársvelti í heilbrigðisþjónustunni. Að það sé verið einhvern veginn að hreinsa upp núna og laga fjársvelti í heilbrigðisþjónustunni. Ef við skoðum tölur t.d. frá 2017, af því að það er mikið verið að tala um síðustu ríkisstjórn — því miður átti ég ekki von á þessu hér en ég man ekki tölurnar — þá eru þetta einhverjir tugir milljarða sem hafa verið settir inn í heilbrigðisþjónustuna umfram verðlag á þessu tímabili.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða tölur þingmaðurinn er að vitna í þegar hann heldur slíku fram, að það hafi ekki verið bætt í heilbrigðisþjónustu hjá síðustu ríkisstjórn, 2017. Ég kannast bara ekki við þetta.