fjárlög 2026.
Forseti. Ég vil aftur þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans seinna andsvar og ég vil líka taka undir með honum. Hv. þingmaður segir að það sé ekki sama hvernig menn tala. En ég vil líka segja að það er ekki nóg að grípa einhvers staðar niður samhengislaust einhverja eina línu hér og eina línu þar í fjárlagafrumvarpinu og draga fram einhverja mynd og vera með því að segja hvað? Er hv. þingmaður að segja að á síðasta kjörtímabili hafi verið bætt meira fjármagni í heilbrigðiskerfið heldur en gert er ráð fyrir núna í þessum fjárlögum? Þarna er allt slitið úr samhengi. Það er alveg ljóst að þætti barna og ungmenna er gerður betri skil í þessu fjárlagafrumvarpi heldur en í því síðasta þótt ekki væri nema til að taka þann stóra punkt að ríkið hefur tekið yfir einn erfiðasta og þyngsta málaflokkinn frá sveitarfélögunum sem eru börn með fjölþættan vanda, gríðarlega umönnunarþungur málaflokkur sem mun krefjast stuðnings, fagmennsku, sérfræðinga og vistunar til skamms og lengri tíma. Þetta er það sem bíður okkar næstu misseri og ár að taka utan um. Hvar var þetta á síðasta kjörtímabili og hver var staða biðlistana og hver var staða aðstoðar við börn með geðfatlanir sem núna er sérstaklega verið að bæta í? Við verðum svolítið, herra forseti, að ræða þetta í sameiningu og líka einhvern veginn í samhengi, ekki bara að kippa einhverju út bara til þess að reyna að sýna fram á að allt hafi verið svo mikið betra hjá síðustu ríkisstjórn heldur en þeirri sem nú er. Það er verið að draga upp ranga og skakka mynd úr einni og einni línu. Ég bara tek ekki alveg þátt í svona.
Ég vona að ég hafi, herra forseti, komið núna mínum skilaboðum til skila ágætlega skýrt varðandi hvað við erum nákvæmlega að tala um og hvað sé verið að gera.