fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni, formanni efnahags- og viðskiptanefndar, fyrir hennar yfirferð. Þar var einmitt komið svolítið inn á þessar fjölmörgu skattahækkanir og þar hefur hver og einn sín orð um það hér en fljótt á litið get ég ekki séð annað en að fjölskyldunni sé fórnað. Fjölskyldan sem er að kaupa sitt fyrsta eða annað húsnæði, er að stækka við sig eftir að börnunum fjölgar, er að eignast börnin; fjölskyldan sem er að kaupa sinn fyrsta bíl, borga námslánin eða er jafnvel enn í námi og nýtur hvergi afsláttar í kerfinu, þetta eru náttúrlega breiðu bökin, millistéttin í landinu — þarna er svokölluð skattatiltekt, mér heyrist að það sé nýjasta orðið hjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Mig langaði svolítið að koma inn á það við þingmanninn hvort hún geti útskýrt það betur fyrir mér hvernig verið sé að leiðrétta eða jafna stöðu fjölskyldnanna með því að taka samsköttunina í burtu, sem er gríðarlega mikilvæg, sérstaklega fyrir tekjulægri aðilann í þeirri grunneiningu sem við höfum hér á Íslandi, sem er fjölskyldan. Hvernig er hægt að útskýra það, hvað varðar séreignarsparnaðarleiðina og samsköttunina, að þar sé verið að leiðrétta eitthvað eða auka sanngirni? Það er eiginlega verið að auka ósanngirni með þessu.