fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á að þakka þingmanninum fyrir mjög góða fyrirspurn. Hann spyr hér um samsköttunina sem lagt er til að verði afnumin. Hann talar um aðför að fjölskyldunni. Þá spyr ég: Er þetta ekki bara aðför að konum? Er þetta ekki bara aðför að konum, af því að 81% þeirra sem njóta samsköttunar eru karlar? Og er þetta þá ekki bara líka aðför að tekjuháum af því að samsköttunin gagnast fyrst og fremst þeim sem eru í efstu tekjutíundum þessa lands? Þetta er alltaf spurning um það hvernig maður spyr.
Auðvitað hefur þetta reynst mörgum mjög vel. Þetta er tímabundið úrræði, sem er að renna út núna. Þetta átti að renna út 2023, að ég held, en það var hætt við það. Þetta hefur nýst ofboðslega mörgum en þarna erum við að afsala okkur skatttekjum framtíðarinnar. Ég bið þingmanninn að hafa það í huga. Er það eitthvað sem hann vill gera? Er hann til í að afsala sér skatttekjum framtíðarinnar? Ég veit þetta nýtist vel. En eigum við þá ekki frekar að hugsa hvað við getum gert til að koma til móts við þá sem eru að kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti, unga kaupendur, ungt fólk sem er að fara inn á húsnæðismarkaðinn? Hvernig getum við nýtt þetta sem best? Þetta eru skatttekjur almennings og við þurfum auðvitað að hugsa um það hvernig við ráðstöfum þeim sem best. Hvernig komum við best til móts við þennan hóp? Ég vona að þingmaðurinn sé til í að skoða það með mér hvað við getum gert í því, hvort það sé séreignarsparnaður eða einhverjar aðrar leiðir eða hvort við ættum frekar að nota séreignarsparnaðinn til þess að koma til móts við þá sem eru að koma fyrst inn, hvort það sé þá ekki bara betri nýting á þessu úrræði frekar en að styðja við tekjuhæstu hópa þessa lands.