fjárlög 2026.
Forseti. Hér hefur enginn haldið því fram að þessi bati sem hefur verið á þessu ári tengist ekkert forsögunni. Þessar tölur eru hreyfanlegar. Við erum hins vegar að vekja athygli á því að af þessum 27 milljarða bata fara 11 í vexti og verðbætur, sem eru gjöld sem uppfærast sjálfkrafa. 11 milljarðar af því eru að fara í betri stöðu ríkissjóðs. Það vantar 15 milljarða upp á. Ég myndi gjarnan vilja finna 15 milljarða einhvers staðar og mögulega fá tillögu frá hv. þingmanni um hvar við getum fengið þá. Það er er stutt í þetta, 15 milljarðar af 1.600 milljarða fjárlögum er mjög lág tala. Við erum komin í ákveðið jafnvægi og nálægt jafnvægi hjá ríkissjóði. Lykilatriðið er að við erum engu að síður að forgangsraða. Ég held að allir sjái það í umræðunni að við erum ekki að gera allt fyrir alla strax. Við erum að forgangsraða. Við erum að halda okkur innan stöðugleikareglu. Við hefðum getað eytt meira. Við kusum að gera það ekki. Það liggur alveg fyrir að það er stutt í afkomunúllið og ég fagna því og tek því bara fagnandi ef það koma hér tillögur til að finna þessa 15 milljarða.