157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:14]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur, bæði í stefnuræðu sinni í gær og svo núna, farið ágætlega yfir þær áherslur sem hún og hennar ríkisstjórn leggja mest upp úr. Auðvitað er það svo, og ég hygg að ég sé ekki einn um það, að þessa 365 blaðsíðna bók hef ég ekki lesið alveg til hlítar. Hún barst seinni partinn í fyrradag og það væri líklega afrek á heimsmælikvarða að komast í gegnum hana til að mæta hæstv. forsætisráðherra í rökræðu um innihald bókarinnar, eða eftir föngum fjármálaráðherra. Ég legg því til, þó að það heyri ekki beint undir þessa umræðu, herra forseti, að í framtíðinni verði okkur þingmönnum gefinn aðeins rýmri tími til að fara yfir gögnin og jafna þar með leikinn.

En höfum eitt í huga: Eitt liggur þó fyrir í þessari bók, og er staðfest af hæstv. forsætisráðherra, og það er að útgjöld ríkissjóðs verða á næsta ári yfir 1.600 milljarðar. Það er hærra en nokkru sinni fyrr, það er sleggjan. Svona kemur hún fram. Það er hins vegar rétt, og ég tek undir það með hæstv. forsætisráðherra, að 15 milljarðar eru ekki stór tala í samhengi við 1.600 milljarða útgjöld. En hvers vegna var þá ekki gengið alla leið úr því að þetta er svona lítil tala, svona lítið mál? Ég skal meira að segja, af því að hér var kallað eftir því af hálfu hæstv. forsætisráðherra — í samtölum hennar við hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur spurði hún: Hvað leggið þið til? Tími minn er útrunninn en ég skal mæta hér og leggja til nokkrar góðar hugmyndir fyrir forsætisráðherra.