157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:19]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Stöðugleikareglan og það afrek að hafa verið undir 2%, ég er ekki viss um að þeir sem eru að hlusta og fólk almennt úti í bæ geri sér grein fyrir því hvað þarf til til að vera undir svona stöðugleikaviðmiði. Dæmi um slíkar aðgerðir er t.d. að taka út fyrir sviga 70 plús milljarða sem áætlaðir eru í öryggis- og varnarmál. Þeir eru bara ekkert með í dæminu, þeir eru teknir út fyrir sviga. Þannig að stundum er leikfimin ansi frjálsleg.

Ég lofaði hins vegar hæstv. forsætisráðherra að koma með einhverjar ábendingar og ég skal nefna hér eitthvað aðeins. Byrjum á einhverju klassísku. Við getum nefnt RÚV. Þar má lækka verulega framlög. Við getum sett upp tímabundið stopp á veitingu leyfa til hælisleitenda, t.d. stopp í fimm ár. Svo getum við lagt niður Lyfjastofnun og sagt bara sem svo: Þegar Lyfjastofnun Noregs hefur samþykkt lyf fyrir markað í Noregi (Forseti hringir.) þá gildir það hér líka. Þarna eru komnir talsvert meira en 15 milljarðar.

Forsætisráðherra. Þú ert kominn í land.