fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta framlag. Mér finnst allt í lagi að taka það fram að umræddir 70 milljarðar í öryggis- og varnarmál, þetta 1,5% sem oft hefur verið rætt, það er ekki búið að gera ráðstafanir um það í fjármálaáætlun. Þetta er langtímamarkmið til yfir tíu ára sem mörg NATO-lönd hafa skuldbundið sig til að uppfylla, 3,5% hjá öllum öðrum NATO-ríkjum en okkur, sem við föllum ekki undir, m.a. vegna þess að við höfum staðið í öflugri hagsmunagæslu til að gera fólki grein fyrir því að við höfum ákveðna sérstöðu. Það verður gott að taka umræðu um nákvæmlega hvernig við speglum öryggis- og varnarmálin þarna inni.
Varðandi RÚV þá er gott að segja frá því að þessi ríkisstjórn er einmitt með áætlanir um að endurskoða hvernig sú starfsemi á sér stað. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra er að koma fram með frumvarp núna í vetur. Þetta frumvarp sá ég ekki hjá síðustu ríkisstjórn með þessum hætti þrátt fyrir að oft hafi verið talað um RÚV. Margoft var fólk á gula hnappinum þegar kom að nefskattinum en þetta kom aldrei. En núna er m.a. verið að endurskoða þetta og það er aldrei að vita nema það komi einhverjar áhugaverðar sparnaðartillögur út úr því.