157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:26]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir. Ég tel afar mikilvægt að við mótun nýrrar atvinnustefnu fyrir Ísland fái sem flestar atvinnugreinar aðkomu ásamt fulltrúum verkalýðshreyfingar, atvinnulífs, sveitarfélaga, menntakerfisins, heilbrigðiskerfisins og umhverfissamtaka. Við lifum á miklum umbrotatímum þar sem hraðar tækniframfarir og samfélagsbreytingar kalla á nýjar lausnir. Þess vegna er mikilvægt að stjórnvöld sýni frumkvæði í mótun framsækinnar atvinnustefnu sem nýtist almenningi og komandi kynslóðum. Sú stefna þarf að vera í sátt við umhverfið og sjálfbæra þróun og má ekki eingöngu vera knúin áfram af ósjálfbærum hagvexti eða skammtímasjónarmiðum og gróðahyggju. Fjölbreytileiki í atvinnulífi um allt land er lykilatriði fyrir öflugri byggð og byggðastefnu. Það skiptir öllu máli að við höfum sterka innviði og traustar samgöngur ásamt því að skapa hagkvæmt rekstrarumhverfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Jafnframt er brýnt að tryggja fjölbreytileika í sjávarútvegi, efla landbúnað og nýsköpun. Ég bara treysti því að ríkisstjórnin vinni vel að þessari mótun og hafi þessa aðila með í ráðum því að það skiptir máli fyrir framtíð okkar kynslóðar og komandi kynslóða.