157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:28]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir sína framsögu, er glaður að heyra þennan nýja tón þar sem forsætisráðherra er farin að verja ríkisfjármál ekki bara þessa árs heldur síðustu ára, glíman við mikla fólksfjölgun og erfiða tíma og áskoranir af ýmsu tagi þýði að það sé ekki alltaf auðvelt að ná niður verðbólgu sem blasir auðvitað við að er stærsta viðfangsefni ríkisfjármálanna og efnahagsmálanna og ríkisstjórnarinnar á hverjum tíma, sérstaklega núna þegar verðbólgan er lífseig og verðbólguvæntingar hafa vaxið. Það kom mér ekkert á óvart að tekjur þessa árs væru um 80 milljörðum hærri. Ég gat ekki giskað á hvort þær yrðu 50, 60, 70 eða 80 en það kom mér ekkert á óvart að þær yrðu umtalsvert hærri heldur en í fjármálaáætlun. Síðustu ár höfum við glímt við það að tekjuáætlunarkerfi ríkisins hafa vanáætlað tekjur um og yfir 100 milljarða. Við gerð síðustu fjárlaga fullyrtu sérfræðingar ráðuneytisins og Hagstofunnar og allir að nú væru breyttir tímar. Nú myndi þetta ekki gerast aftur. Ég hafði efasemdir. Efasemdirnar hafa reynst réttar. 80 milljarða tekjuauki er umtalsvert og hjálpar verulega við að laga til og lækkar þar af leiðandi halla ríkissjóðs umtalsvert. Tekjuáætlun vegna ársins 2026 er 27 milljörðum hærri heldur en í fjármálaáætlun. Ég ætla bara að segja það hér og nú að þær verða meiri ef hagvöxtur heldur áfram, þær verða umtalsvert meiri. Í því ljósi verða verðbólguvæntingar auðvitað meiri áskorun.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Þar sem tekjuaukningin í síðustu fjárlögum var 64 milljarðar en 126 í þessum, hefði ekki verið nóg að fara í 110 og skila 1 milljarði í plús?