157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:39]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég verð bara að segja eins og er að það er svolítið verið að tala fram og til baka um hvar aðhald er. Ef við förum ekki í hækkun krónutölugjalda sem nemur verðbólgu þá erum við að fara í raunskattalækkanir. Það er bara þannig. Það er misskilningur að þetta sé verðbólguhvetjandi. Það er misskilningur. Ef þetta fylgir ekki verðbólgu er þetta raunlækkun. Það er einfaldlega þannig. Og ég ætla bara að endurtaka það sem ég sagði áðan: Ef ríkið vill hætta að sinna einhverri þjónustu á ríkið að koma fram og segjast ætla að gera það. Það ætti ekki að láta tekjurnar rýrna smám saman. Þetta er eitthvað sem ríkið er búið að skuldbinda sig til að gera, það kostar ákveðna peninga og það er ekkert óeðlilegt að fá þá á móti.

Mig langar líka að segja varðandi bifreiðagjöldin: Sumt geta verið pólitísk átök um en um annað eigum við alveg að geta náð sátt hér, eins og t.d. að fólk bara tali almennilega um hluti sem það sjálft lagði fram í fyrri fjármálaáætlun. Það vita það flestir hér inni sem hafa verið læsir á fjárlög síðustu ára að það hefur alltaf staðið til að reyna að hífa gjaldtöku sem snýr að vegagerðinni aftur upp í fyrri prósentu. Hún gjörsamlega hrundi með sparneytnari bílum og það kom lítið annað í staðinn. Fyrri ríkisstjórn, sem hv. þingmaður sat m.a. í, ætlaði að ná þessum gjöldum upp í 1,7% af vergri landsframleiðslu. Og hvað er þessi ríkisstjórn að gera? Á næsta ári er hún að setja þessi gjöld í 1,6% af vergri landsframleiðslu.

Við getum tekist á um ýmislegt hér. Við getum tekist á um auðlindagjöld, við getum stundum tekist á um skattþrep en það að við séum að takast á um kílómetragjöld, sem fyrri ríkisstjórn ætlaði sér með einum eða öðrum hætti að innleiða, finnst mér sérstakt. Ég bið okkur að halda orkunni í einhverju sem raunverulega þyrfti að vera pólitísk óeining um. Þetta er bara takturinn sem við vorum í áður. Hann var ágætur og það þarf að koma til móts við þessa lækkun út af sparneytnari bílum. Það vita það allir hér inni.