fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Já, það var á þingmálaskrá síðustu ríkisstjórnar að hækka þessi gjöld en þau voru ekki hækkuð. Það var ekki gert vegna þess að það var tekin ákvörðun um það sérstaklega að horfa til landsbyggðarinnar sem finnur strax fyrir þessum hækkunum í sínu daglega lífi. Eldsneyti og samgöngukostnaður er ekki val heldur nauðsyn og þegar krónutölugjöld eru látin fylgja verðbólgu í einu og öllu lendir þunginn hlutfallslega á fjölskyldum og fyrirtækjum sem þurfa að aka lengra, flytja vörur og reka þjónustu vítt og breitt um landið. Ef við ætlum að létta undir og halda verðbólgu niðri er skynsamlegt að taka þessi gjöld sérstaklega út fyrir sviga á þessu tímabili. Mun forsætisráðherra fallast á tímabundnar undanþágur fyrir eldsneyti og bifreiðatengd gjöld þar til vextir og verðbólga hafa lækkað og orkuskipti í samgöngum eru komin lengra? Mun hún jafnframt tryggja að allar óvæntar viðbótartekjur fari í niðurgreiðslu skulda í stað varanlegra útgjalda? Þetta eru skýrir valkostir sem mæla með stöðugleika, aðhaldssemi og framtíðarsjónarmiðum um öflugt atvinnulíf um land allt.
Ég vil einnig fá að heyra frá hæstv. forsætisráðherra, (Forseti hringir.) því að hún nefndi hér að það væri verið að auglýsa starf verkefnastjóra stórfjárfestinga (Forseti hringir.) og við vitum að stórfjárfestingar eru í nánast öllum tilfellum orkufrekur iðnaður: Hefur ekki Landsvirkjun hingað (Forseti hringir.) til séð um að kynna Ísland sem aðlaðandi kost fyrir atvinnuuppbyggingu hér á landi?
(Forseti (KGH): Ég minni hv. þingmenn á tímamörk.)