157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:43]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Mér finnst rétt að taka það fram að þó að síðasta ríkisstjórn hafi ákveðið að klára ekki kílómetragjöldin voru samt í áætlun þeirra tekjur af bifreiðum um 1,7%. Með einum eða öðrum hætti ætlaði ríkisstjórnin sér að ná þessu í gegn. Ég ætla bara að fá að halda þessu til haga. Það er sannarlega ekki búið að vera landsbyggðinni og atvinnuþróun þar til góðs að það hafi ekki verið vilji til að fara í stefnumótandi ákvarðanir til að standa undir vegakerfinu. Það þarf eitthvað að breytast. Eitthvað þarf að breytast til þess að eitthvað annað gerist. Það er bara þannig. Ég ætla ekki að vera þannig stjórnmálamaður né leiða þannig ríkisstjórn sem heldur að hún geti fengið eitthvað fyrir ekki neitt og að við getum áfram verið í sama fari og við vorum áður í. Þetta er því ekki trúverðugur málflutningur hjá formanni Sjálfstæðisflokksins sem veit alveg að það stóð til að leggja á einhvers konar viðbótargjöld til þess að geta staðið undir þessum kostnaði. Það verður því ekki vikið frá þessu.

Varðandi Landsvirkjun: Ég hef fimm sekúndur en ég vil segja að Landsvirkjun hefur tekið vel í að stjórnvöld séu með aðila sem veitir svona, hvað á ég að segja, ákveðinn leiðarvísi inn í stjórnkerfið, vegna þess að í mörgum tilvikum er Landsvirkjun bara með eina hlið á þessu. Landsvirkjun mun áfram koma að sinni ákvarðanatöku á markaðslegum forsendum en það er margt sem er gert í stjórnkerfinu sem er hægt að samhæfa og þessi aðili mun sinna því.