157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:45]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Mig langar að setja aðeins í samhengi þessar fjárhæðir sem varða bifreiðaeigendur af því að mönnum hefur verið tíðrætt um þá miklu skattahækkun sem fjárlagafrumvarpið boðar á bifreiðaeigendur sérstaklega, um 11 milljarða kr. Þetta frumvarp gerir hins vegar ráð fyrir 15 milljarða kr. halla.

Það liggur fyrir að útgjöld ríkisins til vegamála hafa verið 46 milljarðar. Það er gert ráð fyrir því í þessu fjárlagafrumvarpi. Hér er hins vegar gert ráð fyrir að ríkið taki beint úr vösum skattgreiðenda, beint úr vösum bifreiðaeigenda 78 milljarða og gert er ráð fyrir útgjöldum til vegamála upp á 46 milljarða. Það er sem sagt gert ráð fyrir að skattar sem bifreiðaeigendur greiði séu 78 milljarðar. Þetta skiptist niður í hin ýmsu gjöld sem gerir og hefur gert þessa skattheimtu náttúrlega afskaplega ógagnsæja og gert neytendum, bifreiðaeigendum, mjög erfitt um vik að veita aðhald í þessum málaflokki. Bifreiðar, bílar eru næststærsti útgjaldaliður heimilanna. Á eftir fjárfestingu í húsnæði þá eru það bifreiðakaup sem eru þyngsti og stærsti útgjaldaliður heimilanna. Mér þykir þessi skattahækkun, þessi sending til bílaeigenda, ansi köld kveðja m.a. til barnafólks þegar því er haldið fram að með þessu fjárlagafrumvarpi sé verið að koma til móts við hagsmuni barnafólks, en það er verið að senda um 100.000 kr. hækkun á sköttum til heimilanna í landinu. Það er barnafólki sérstaklega þungbært.