fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Lengi vel voru tekjur af bifreiðum í kringum 2% af landsframleiðslu. Svo hrundu þær, ekki af því að það var tekin pólitísk ákvörðun um að það ætti að vera lægra hlutfall af vergri landsframleiðslu heldur vegna þess að það varð umbreyting á því með hvaða hætti gjöldin komu inn, vegna þess að þetta var í formi bensíngjalds og svo fékk fólk sér sparneytnari bíla. En það vill svo til að þrátt fyrir að það sé jákvætt fyrir loftslagið að fólk fari á sparneytnari bíla þá er fólk enn þá að keyra á vegunum. Það þarf enn þá að nota vegina. Og lengi vel, framan af, var það meira að segja þannig að þau sem höfðu efni á því að kaupa sér nýjan dýran rafmagnsbíl, sem voru oftast ekki af tekjulægstu heimilunum í landinu, þau sáu kostnaðinn hrynja niður vegna þess að þau þurftu ekki að greiða fyrir það.
Það lá alltaf fyrir að við myndum þurfa að fara í kerfisbreytingu og þessir 11 milljarðar sem hér eru taldir til eru að koma okkur upp í þetta 1,6% sem er samt langt undir sögulegu meðaltali. Það er hægt að taka hér fram og reiða hér fram alls konar tölur en aðaltalan sem fólk þarf að muna og átta sig á þarna úti er að lengst af var þetta í kringum 2% og þetta hrundi eftir það. Þannig að fólk er yfirhöfuð ekki að borga meira fyrir bílana sína en áður. Það er bara verið að leiðrétta breytingu sem varð í gjaldtöku á bílum. Það er þannig. Fólk er enn þá að keyra á vegunum. Það veldur álagi á vegunum. Það er og hefur hingað til, hélt ég, en það er kannski misskilningur hjá mér, verið svona almenn pólitísk sátt um það að það væri gjaldtaka af bílum. Síðan bara gerðist það að hún minnkaði smám saman. Það tók enginn sérstaka ákvörðun um það. Þannig að mér finnst þetta ekki vera stór pólitísk ákvörðun þó að ég skilji alveg hvert hv. þingmaður er að fara. Auðvitað vill maður ekki auka kostnað fólks óþarflega af því að eiga bíl en við erum að reyna að halda í horfinu. Og ég vil bara vekja athygli á því að ef við förum ekki þessa 11 milljarða leið þá erum við komin með enn þá meiri halla. Þá erum við komin með minna aðhald. Þá erum við mögulega komin með meiri þenslu, viðvarandi hærra vaxtastig, þannig að eitthvað verður að taka og það munar líka um hverja krónu vegna lægri vaxta.