fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Mér þykir nálgun hæstv. forsætisráðherra á skattheimtu ansi furðuleg, að það sé markmið í sjálfu sér að tilteknir skattar séu tiltekið hlutfall af landsframleiðslu. Ég rakti hér í fyrri fyrirspurn minni þennan mismun sem er gert ráð fyrir í útgjöldum til vegamála, sem eru 46 milljarðar, og skattheimtunni hins vegar, 78 milljarðar. Það er þetta hlutfall og þessar tölur sem við þurfum að horfa til. Mér heyrist að hæstv. forsætisráðherra vilji standa vörð um þessa ofurskattlagningu á þarfasta þjóninn hér á Íslandi sem allar fjölskyldur í landinu þurfa á að halda. Það finnst mér með miklum ólíkindum, að það sé ekki reynt að leita leiða til að létta af byrðum heimilanna með því að lækka þessar álögur. Ég vil benda hæstv. forsætisráðherra á að það var búið að loka þessu gati á síðasta kjörtímabili er varðar rafbílana en nú ætla menn að spóla í því furðulega fari að taka upp eitthvert nýtt kerfi fyrir bensínbíla og vera með tvöfalt kerfi. Og bara reksturinn af þessu tvöfalda kerfi, hann verður kostnaðarsamur. (Forseti hringir.) Þetta er mjög undarleg nálgun. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún telji ekki tímabært að staldra örlítið við í þessari miklu kerfisbreytingu (Forseti hringir.) sem þetta fjárlagafrumvarp boðar með þessum miklu skattahækkunum sem þessi kerfisbreyting virðist eiga að hafa í för með sér.