fjárlög 2026.
Forseti. Ég býst við að það verði mjög áhugaverðar og líflegar umræður þegar kílómetragjaldið kemur hérna inn í sal og þá getum við kannski farið aðeins meira á dýptina hvað þetta varðar. Við getum alveg verið ósammála, hv. þingmaður, um hvort gjaldtaka ríkisins eigi að vera 2% af bílum eða ekki. Ég veit hins vegar að það sem hefur ekki breyst heldur bara aukist eru kröfur um aukna þjónustu ríkisins. Við viljum meiri þjónustu fyrir börnin okkar. Við viljum frekari greiningar. Við viljum styðja betur við fatlað fólk. Við viljum koma betur til móts við eldra fólk. Við búum í gjörbyltu samfélagi þegar kemur að þjónustuþörf vegna þess að það er það sem hefur fylgt velsældarsamfélagi og einhvern veginn þurfum við að standa undir því. Hingað til höfum við verið með gjaldtöku í kringum 2% af landsframleiðslu. Auðvitað er það ekkert meitlað í stein og við getum alveg verið ósammála um það. En ég ætla ekki að láta eins og hér sé um brjálæðislega kerfisbreytingu að ræða. Það hefur verið þessi taktur á gjöldum af bifreiðum. Núna er bara verið að tryggja að það rati sannarlega í kassann. En ég ætla líka að vekja athygli á því að ríkisstjórnin er að setja 7–9 milljarða á ári hverju á næstu árum í vegakerfið, langtum meira en áður hefur verið gert í viðhaldi og um þetta munar.